10.05.2012 07:56
Sameiginlegir tónleikar
16.01.2012 07:53
Æfingar hefjast 2012
Fyrsta æfing á nýju ári verður mánudaginn 16. janúar kl 19.30-21.30 í Þorlákskirkju.
Allar söngglaðar konur eru velkomnar í kórinn og er hægt að skrá sig á staðnum. Kunnátta í nótnalestri eða reynsla af kórstarfi er ekki nauðsynleg, það dugir að halda lagi og hafa gaman af því að syngja :)
29.11.2011 12:58
Jólastemming og jólakort
Jólakortin okkar eru til sölu með neðangreindri mynd en 10 stk í pakka með umslagi kosta einungis 1000 kr. Nú er um að gera að hafa samband og panta sér kort í síma 844-8000.
03.11.2011 07:53
Hausttónleikar 11.11.11
Kyrjukórinn í Þorlákshöfn heldur hausttónleika í Þorlákskirkju föstudaginn
11. nóvember 2011. Tónleikarnir hefjast kl. 20:11.
Efnisskráin er fjölbreytt að vanda, en á tónleikunum mun kórinn flytja úrval af skemmtilegum dægurlögum, íslenskum og erlendum svo sem Ramóna, Vetrarsól, Smile og Sway.
Stjórnandi kórsins er Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdóttir
Undirleikari á tónleikunum verður Helgi Már Hannesson
Aðgangseyrir er kr. 1.500
Frítt fyrir 16 ára og yngri
Eigum saman notalega kvöldstund.
Allir velkomnir!
Vinsamlega athugið að ekki verður hægt að taka við greiðslukortum.
07.09.2011 09:19
Gróðursetning
Sunnudaginn 28. ágúst mættu nokkrar hressar konur úr kórnum austur í Rangárvallasýslu að planta trjám til fjáröflunar fyrir kórinn. Skemmst er frá því að segja að ferðin heppnaðist vel og náðist að koma um 3200 plöntum niður. Fyrirhugað er að fara aðra ferð næsta vor til að bera áburð á svæðið. Anna formaður og Sigrún buðu okkur í dýrindis hádegisverð í bústað Sigrúnar sem er spölkorn frá gróðursetningarsvæðinu og dugðu þær kræsingar okkur sem orkugjafi það sem eftir lifði dags. Það verður auðvelt að fá hópinn í svona vinnu aftur á svæðið ef humarsúpan hennar Sigrúnar verður í boði :)
01.06.2011 13:05
Tónleikar 30. maí 2011
- 1
